mið 12. ágúst 2020 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Ramsey ekki á förum - „Þetta er þvæla"
Aaron Ramsey
Aaron Ramsey
Mynd: Getty Images
Aaron Ramsey, leikmaður Juventus á Ítalíu, er ekki á förum frá Juventus en umboðsskrifstofan sem sér um hann segir það kjaftæði að Andrea Pirlo ætli sér að losa sig við hann í glugganum.

Pirlo tók við þjálfarastarfinu hjá Juventus á dögunum eftir að félagið lét Maurizio Sarri taka poka sinn eftir að hafa dottið úr leik gegn Lyon í Meistaradeild Evrópu.

Ljóst er að Pirlo ætlar sér að hreinsa til hjá félaginu í sumar en ensku miðlarnir greindu frá því að Aaron Ramsey, Gonzalo Higuain, Mattia de Sciglio, Daniele Rugani og Sami Khedira væru allir á förum.

Umboðsskrifstofan sem sér um Ramsey þvertekur fyrir þessar sögusagnir á Twitter. Færsluna má sjá hér fyrir neðan.

Sjá einnig:
Pirlo ætlar að hreinsa til - Ramsey og Higuain á förum


Athugasemdir
banner
banner
banner