Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 12. ágúst 2020 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Samfélagsskjöldurinn verður tvíhöfði þetta árið
Chelsea er Englandsmeistari kvenna.
Chelsea er Englandsmeistari kvenna.
Mynd: Getty Images
Enska knattspyrnusambandið hefur gefið það út að hinn árlegi leikur um Samfélagsskjöldinn verði tvíhöfði þetta árið.

Í leiknum um Samfélagsskjöldinn mætast deildarmeistararnir og bikarmeistararnir á Englandi.

Viðureignin fer fram 29. ágúst á Wembley og verður þá leikið um bæði Samfélagsskjöld karla og kvenna.

Leikurinn um Samfélagsskjöld kvenna fer fram í fyrsta sinn síðan 2008. Englandsmeistarar Chelsea munu mæta ríkjandi bikarmeisturum Manchester City. Leikurinn hefst 11:30 að íslenskum tíma.

Klukkan 15:30 hefst svo leikur Liverpool og Arsenal um Samfélagsskjöld karla.

Báðir leikir fara fram án áhorfenda vegna kórónuveirunnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner