Andros Townsend, kantmaður Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni, segist njóta þess mjög að fá sér skyndibita þegar hverju tímabil lýkur.
Matarræðið hjá honum er mjög hollt og gott á meðan tímabilið er í gangi, en þegar því lýkur þá sleppir hann sér. Skyndibitakeðjan McDonalds er í miklu uppáhaldi hjá honum.
„Ég er mjög strangur við sjálfan mig á meðan tímabilið er í gangi," sagði Townsend við Talksport. „En þegar tímabilið er búið þá borða ég allt það sem er í kringum mig og ég þarf alltaf góða viku á undirbúningstímabilinu til að koma mér aftur í stand."
„Ég fer beint á McDonalds. Tvær McChicken samlokur, tveir skammtar af frönskum og tveir drykkir. Ég tek þetta í lúgunni og borða þetta heima."
Townsend fær minna sumarfrí en venjulega vegna kórónuveirufaraldursins. Enska úrvalsdeildin hefst aftur 12. september.
Athugasemdir