12.08.26 - 01:06
Albert Guðmundsson
38 umferðir - Yfirferð yfir öll 20 liðin í deildinni og skoðum liðsuppstillingar með og án Haaland
Annar þáttur er kominn út!
Auglýsing

38 umferðir er Fantasy Premier League hlaðvarp Fotbolta.net

Mynd: Albert Guðmundsson

Joao Pedro kom við sögu í þættinum

Mynd: EPA

Annar þátturinn af 38 umferðum er kominn út en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.
Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á öllum 20 liðunum í deildinni og fóru yfir tvær mismunandi uppstillingar hvor sem þeir sjá fyrir sér að stilla upp í fyrstu umferð, eitt lið með Haaland og eitt lið án Haaland.
Einnig tilkynntu félagarnir um gjafaleik sem er að fara af stað á Instagram og Tiktok miðlum 38 umferða. Glæsilegir vinningar frá Happatreyjum, Thule, Bullseye og Matarkjallaranum.

Fantasy Premier League nýtur gríðarlegra vinsælda á Íslandi þar sem yfir 25 þúsund Íslendingar spila leikinn. Albert og Sindri munu vera með þátt eftir allar 38 umferðir tímabilsins, greina frá því sem gerðist í þeirri síðustu og leggja línurnar fyrir þá næstu.
Albert og Sindri mynda gott dúó með breiða skírskotun en Albert er mjög reynslumikill spilari og samkvæmt fplresearch.com besti Fantasy Premier League spilarinn á Íslandi. Sindri er reynsluminni og nálgast leikinn með örlítið öðrum hætti en þeir bestu í bransanum. Þar getur brugðið til beggja vona.
Fotbolti.net verður með draumaliðsdeild fyrir lesendur þar sem verður til mikils að vinna. Verðlaun verða tilkynnt síðar.
Þú finnur 38 umferðir á Instagram, TikTok og X @38umferdir þar sem við verðum í gjafastuði í allan vetur.
Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule, Visitor, Bullseye, World Class, Íslenski barinn og Matarkjallarinn.
Ef þú spilar Fantasy Premier League þá borgar sig að fylgjast með 38 umferðum í allan vetur.