Fotbolti.net
12.08.26 - 21:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deild kvenna: FH vann Fram í tíu marka leik

Breiðablik og Þróttur fögnuðu sigrum

FH vann í mögnuðum leik

FH vann í mögnuðum leik

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Þrír leikir fóru fram í Bestu deild kvenna í kvöld. Það var magnaður leikur á Lambhagavelli þar sem Fram fékk FH í heimsókn.

FH komst yfir snemma leiks þegar Helena Maree Errington skoraði með skoti í varnarmann og inn. Ída Marín Hermannsdóttir bætti síðan öðru markinu við þegar hún slapp í gegn.
Alda Ólafsdóttir minnkaði muninn fyrir fram undir lok fyrri hálfleiks þegar hún skoraði með skalla.

Hrönn Haraldsdóttir skoraði laglegt mark snemma í seinni hálfleik og kom FH aftur í tveggja marka forystu. Ída Marín skoraði síðan sitt annað mark og fjórða mark FH.

Ragnheiður Th. Skúladóttir skoraði síðan fimmta mark FH. Fram náði að svara með tveimur mörkum en Nia Raisa Christopher gerði endanlega út um leikinn áður en Taylor Marie Hamlett skoraði sárabótamark.

Katelyn Duong var hetja Breiðabliks þegar hún skoraði eina mark leiksins í sigri á Grindavík/Njarðvík snemma leiks í Kópavogi.

Það var spennandi botnslagur þar sem Þróttur fékk Val í heimsókn. Þróttarar voru í stuði í fyrri hálfleik. Unnur Dóra Bergsdóttir skoraði með skoti úr teignum snemma leiks og kom Þrótti yfir.

Stuttu síðar bætti Kayla Marie Rollins við öðru marki eftir að Vera Varis hafði varið boltann út í teiginn. Björg Gunnlaugsdóttir bætti síðan þriðja markinu við eftir 26 mínútna leik.

Valskonur gáfust ekki upp. Rollins varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir fimm mínútna leik í seinni hálfleik. Stuttu síðar bætti Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir við öðru markinu og munurinn var bara orðinn eitt mark.

Nær komust Valskonur ekki og Þróttur vann sterkan sigur.

FH er á toppnum með 33 stig eins og Breiðablik sem er í 2. sæti. Grindavík/Njarðvík er í 5. sæti með 19 stig, Þróttur er komið upp í 6. sæti með 18 stig. Fram er í 7. sæti með 16 stig og Valur í 9. sæti með 13 stig.

Þróttur R. 3 - 2 Valur
1-0 Unnur Dóra Bergsdóttir ('4 )
2-0 Kayla Marie Rollins ('16 )
3-0 Björg Gunnlaugsdóttir ('26 )
3-1 Kayla Marie Rollins ('50 , sjálfsmark)
3-2 Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir ('56 )
Lestu um leikinn

Breiðablik 1 - 0 Grindavík/Njarðvík
1-0 Katelyn Duong ('9 )
Lestu um leikinn

Fram 4 - 6 FH
0-1 Helena Maree Errington ('5 )
0-2 Ída Marín Hermannsdóttir ('32 )
1-2 Alda Ólafsdóttir ('43 )
1-3 Hrönn Haraldsdóttir ('51 )
1-4 Ída Marín Hermannsdóttir ('58 )
1-5 Ragnheiður Th. Skúladóttir ('70 )
2-5 Sara Svanhildur Jóhannsdóttir ('72 )
3-5 Alda Ólafsdóttir ('83 )
3-6 Nia Raisa Christopher ('85 )
4-6 Taylor Marie Hamlett ('90 )
Lestu um leikinn
Katelyn Duong

Katelyn Duong

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1FH13+2530
2Breiðablik13+2430
3Stjarnan14+523
4ÍBV14-321
5Grindavík/Njarðvík14-519
6Fram14-1116
7Þór/KA14-515
8Þróttur R.14-515
9Valur14-1213
10Víkingur R.14-1311
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.