Fotbolti.net
12.08.26 - 21:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Dagný semur á Selfossi - „Sést strax hversu mikla hæfileika hún hefur"

Dagný semur á Selfossi - „Sést strax hversu mikla hæfileika hún hefur"
Canon

Mynd: Selfoss

Kvennaboltinn
Dagný Brynjarsdóttir hefur skrifað undir samning við Selfoss út tímabilið. Dagný er nýorðin 35 ára en hún eignaðist sitt þriðja barn fyrr á þessu ári. Hún spilaði síðast með West Ham frá 2021-2025.

Hún hóf ferilinn hjá KFR og Ægi. Hún fór til Vals árið 2007 og síðan til Selfoss árið 2014 áður en atvinnumannaferillinn hófst ári síðar. Hún spilaði með Bayern Munchen og Portland Thorns áður en hún sneri aftur á Selfoss sumarið 2020.
Dagný Brynjars skiptir í Selfoss (Staðfest)
TENGT EFNI

Dagný Brynjars skiptir í Selfoss (Staðfest)

Hún á að baki 122 landsleiki og í þeim hefur hún skorað 38 mörk.

„Við erum virkilega ánægð með að fá Dagnýju til liðs við okkur út tímabilið. Hún hefur æft með okkur og það sést strax hversu mikla hæfileika hún hefur. Hún hefur líka fallið mjög vel inn í hópinn. Hún er að vinna sig smám saman aftur í fullt leikform, þannig að við tökum þetta skref fyrir skref,” sagði Jonathan Glenn, þjálfari Selfoss.

Næsti leikur Selfoss í Lengjudeildinni er útileikur gegn Völsungi á laugardaginn. Selfoss er í 4. sæti með 19 stig eftir 12 umferðir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.