Fotbolti.net
12.08.26 - 09:10
Elvar Geir Magnússon

Ipswich að kaupa Enciso

Ipswich að kaupa Enciso
Canon

Mynd: EPA

Ipswich Town hefur náð samkomulagi um kaup á sóknarleikmanninum Julio Enciso frá Strasbourg. Enciso lék með Ipswich á láni frá Brighton í sex mánuði árið 2025.
Tilfinningaríkur Enciso hugsaði til afa síns - „Viss um að hann sé stoltur af mér“
TENGT EFNI

Tilfinningaríkur Enciso hugsaði til afa síns - „Viss um að hann sé stoltur af mér“

Þessi 22 ára gamli landsliðsmaður Paragvæ vakti athygli undir stjórn Gary O'Neil, núverandi stjóra Ipswich, hjá Strasbourg á síðustu leiktíð. O'Neil, sem áður stýrði Bournemouth og Wolves og tók við á Portman Road í sumar og lagði mikla áherslu á að fá leikmanninn til sín á ný.

Ipswich hefur í sumar fengið Daizen Maeda frá Celtic, Abdul Fatawu frá Leicester City og Emersonn frá Toulouse, en kaupin á þeim síðastnefnda voru þau stærstu í sögu félagsins.

Eftir að hafa tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni hefur Ipswich leik í efstu deild með heimaleik gegn Sunderland þann 22. ágúst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.