Tilfinningaríkur Enciso hugsaði til afa síns - „Viss um að hann sé stoltur af mér“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Julio Enciso, ein af hetjum Paragvæa í ótrúlega sigrinum á Þjóðverjum í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í gær brast í grát í viðtali eftir leikinn.

TENGT EFNI
HM: Paragvæ sendi Þýskaland heim eftir ótrúlega vítakeppni
Enciso skoraði með föstum skalla undir lok fyrri hálfleiks en fór meiddur af velli í þeim síðari. Liðsfélagar hans náðu þó að landa sigrinum eftir vítaspyrnukeppni.
Enciso, sem er á mála hjá Strasbourg í Frakklandi, segist hafa hugsað til afa síns eftir leikinn og að þetta hafi verið langbesti dagur lífs hans.
„Hugur minn fór beint til afa míns. Við horfðum alltaf saman á landsleiki Paragvæ,“ sagði tilfinningaríkur Enciso.
„Ég sendi koss til himna og er viss um að hann sé stoltur af mér. Þetta er langbesti dagur lífs míns og algjör guðsgjöf að fá að upplifa svona dag,“ sagði hann ennfremur.
Enciso hefur verið flottur með Paragvæum á HM, en hann er með tvær stoðsendingar ofan á þetta mark sem hann gerði í gær.