Fotbolti.net
12.09.20 - 17:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jón Sveins: Dómarinn féll í gildruna

Auglýsing
Jón Sveinsson, þjálfari Fram.

Jón Sveinsson, þjálfari Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
<i>„Það eru fyrst vonbrigði að vinna ekki leikinn heima,"</I> sagði Jón Þórir Sveinsson, þjálfari Fram, eftir 1-1 jafntefli gegn Vestra í Lengjudeildinni í dag.

Það var mikill hiti í leiknum og Fram missti Fred Saraiva af velli með rautt spjald eftir 18 mínútur.
„Einum færri megnið af leiknum þá sköpuðum við okkur betri færi og hefðum einfaldlega átt að vinna leikinn."

„Ég sá þetta ekki. Mér heyrist á Fred að það hafi verið farið í bakið á honum, hann hafi misst jafnvægi og rétt út hendurnar. Hann fór helvíti auðveldlega niður og dómarinn féll í gildruna."

Fram er á toppnum í Lengjudeildinni og næsti leikur er toppbaráttuslagur gegn Keflavík. „Þetta eru leikirnir sem þú vilt spila," sagði Jón.

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.