Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 12. september 2020 22:14
Ívan Guðjón Baldursson
Kvennalið Arsenal skoraði níu gegn West Ham
Miedema og Roord eru samherjar bæði hjá Arsenal og hollenska landsliðinu.
Miedema og Roord eru samherjar bæði hjá Arsenal og hollenska landsliðinu.
Mynd: Getty Images
West Ham 1 - 9 Arsenal
0-1 J. Roord ('23)
1-1 K. Dali ('27)
1-2 V. Miedema ('34)
1-3 K. Little ('40)
1-4 B. Mead ('42)
1-5 J. Roord ('52)
1-6 V. Miedema ('54)
1-7 J. Roord ('56)
1-8 L. Williamson ('72)
1-9 C. Foord ('86)
Rautt spjald: G. Flaherty, West Ham ('34)

Kvennalið Arsenal hefur farið gífurlega vel af stað í ofurdeildinni og er liðið með markatöluna 15-2 eftir tvær umferðir.

Í dag unnu Arsenal konurnar stórsigur á tíu leikmönnum West Ham, þar sem Vivianne Miedema skoraði tvennu á meðan samlandi hennar Jill Roord setti þrennu.

Bethany Mead skoraði eitt og lagði tvö upp í stórsigrinum en lokatölur urðu 1-9 fyrir gestina.

Enski kvennaboltinn hefur hækkað gríðarlega mikið í gæðum á síðustu árum og eru nokkur öflug stórlið sem munu líklegast keppast um titilinn í ár. Arsenal er eitt þeirra.

West Ham er með eitt stig eftir jafntefli gegn Tottenham í fyrstu umferð.
Athugasemdir
banner
banner
banner