Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 12. september 2022 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bellerin tók á sig væna launalækkun - Hafnaði tveimur félögum
Hector Bellerin
Hector Bellerin
Mynd: EPA

Hector Bellerin gekk til liðs við Barcelona frá Arsenal á lokadegi félagsskiptagluggans í sumar.


Bellerin er uppalinn hjá Barcelona en gekk ungur til liðs við Arsenal. Eins og frægt er orðið hefur Barcelona verið í miklum fjárhagsvandræðum en Bellerin tók á sig væna launalækkun til að snúa til baka til uppeldisfélagsins.

Fabrizio Romano greinir frá því að Bellerin hafi hafnað tveimur félögum frá Ítalíu til að ganga til liðs við spænska félagið en hann nefnir þó ekki félögin.

Bellerin lék sinn fyrsta leik um helgina þegar Barcelona sigraði Cadiz 4-0.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner