Fotbolti.net
12.09.22 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Chelsea segir Ampadu mikilvægan fyrir félagið

Chelsea segir Ampadu mikilvægan fyrir félagið
Canon

Mynd: EPA

Ethan Ampadu varnarmaður Chelsea fór á lán til Spezia á Ítalíu um mánaðarmótin en það er fjórða liðið á jafn mörgum árum sem hann spilar með.

Hann var á láni hjá ítalska félaginu Venezia á síðustu leiktíð þar sem hann spilaði 29 leiki fyrir félagið.

Ampadu er 21 árs gamall Walesverji sem spilar sem miðvörður en samkvæmt Luca Gotti stjóra Spezia hefur Chelsea mikla trú á leikmanninum.

„Chelsea er á því að Ethan Ampadu verði mjög mikilvægur í miðverðinum í framtíðinni," sagði Gotti.

Það er engin klásúla í samningi hans að SPezia geti keypt hann fyrir ákveðið verð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.