Fotbolti.net
12.09.22 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Gonzalo framlengir við Selfoss (Staðfest)

Gonzalo Zamorano

Gonzalo Zamorano

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Spænski kantmaðurinn, Gonzalo Zamorano, hefur skrifað undir tveggja ára framlengingu á samning sínum við knattspyrnudeild Selfoss.

Gonzalo kom til liðsins frá ÍBV í vetur og hann hefur komið sterkur inn. Hann hefur skorað 14 mörk fyrir félagið í öllum keppnum.

„Ég elska að vera á Selfossi. Félagið og liðið er að vaxa í rétta átt og ég vil vera partur af því. Ég hef mikla trú á þjálfurunum og liðinu. Ég er viss um að liðið verði betra á næsta tímabilið með alla þessa frábæru ungu leikmenn sem verða reynslumeiri og enn betri á næsta ári,” sagði Gonzalo við undirskriftina.

Selfoss leikur gegn KV í lokaumferð Lengjudeildarinnar á laugardaginn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.