banner
   mán 12. október 2020 13:28
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Dr. Football 
Eiður Smári og Davíð Þór þjálfarar FH næsta tímabil?
Davíð Þór Viðarsson.
Davíð Þór Viðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í hlaðvarpsþættinum Dr. Football er því haldið fram að Eiður Smári Guðjohnsen verði áfram þjálfari FH á næsta tímabili en með Davíð Þór Viðarsson sér við hlið.

Hjörvar Hafliðason, Dr. Football, segist hafa góðar heimildir fyrir því að Logi Ólafsson muni ekki halda áfram eftir tímabilið.

Davíð Þór er fyrrum fyrirliði FH-inga en lagði skóna á hilluna í fyrra. Hann hefur samt sem áður verið í góðum tengslum við FH og situr í meistaraflokksráði félagsins.

Logi og Eiður Smári tóku saman við þjálfun FH þegar Ólafur Kristjánsson hélt til Danmerkur.

Þeim hefur gengið vel með liðið en FH er í öðru sæti Pepsi Max-deildar karla.

Ekki er vitað hvaða áhrif það hefur á störf Eiðs fyrir KSÍ ef hann heldur áfram með FH. Eiður er aðstoðarþjálfari U21 landsliðsins en hann er þar aðstoðarmaður Arnars Þórs Viðarssonar, bróður Davíðs.
Athugasemdir
banner
banner
banner