Fotbolti.net
12.11.18 - 18:50
Elvar Geir Magnússon
Skrifar frá: Brussel

Birkir Bjarna: Sé hvort ég geti spilað í gegnum sársaukann

Auglýsing
Birkir á æfingu í Brussel í dag.

Birkir á æfingu í Brussel í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Birkir Bjarnason er mættur til Brussel og æfði ásamt helmingi íslenska landsliðshópsins í dag. Birkir, sem er lykilmaður í íslenska liðinu, er nýstiginn upp úr nárameiðslum en verður vonandi klár í slaginn gegn Belgíu í Þjóðadeildinni á fimmtudag.

Fótbolti.net tók púlsinn á Birki að lokinni æfingu í dag og spurði hvort hann væri orðinn 100% klár?

„Ég er ekki alveg viss enn þá. Það ætti að koma í ljós á morgun þegar ég fæ alvöru æfingu. Við skulum sjá hvernig ég verð eftir hana," segir Birkir.

„Ég finn til en ég ætla að sjá hvort ég geti spilað í gegnum sársaukann."
Íslenska liðið þarf nauðsynlega á Birki að halda á fimmtudaginn en mikið hefur verið um meiðsli í gegnum Þjóðadeildina.

„Það hefur verið of mikið af meiðslum undanfarið. Við verðum bara að líta á það jákvæða að aðrir geta komisð inn og komist inn í hlutina."

Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar talar Birkir meðal annars um fyrri leikinn gegn Belgíu og stöðu mála hjá Aston Villa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.