Taison, leikmaður Shakhtar Donetsk í úkraínska boltanum, fékk beint rautt spjald fyrir að bregðast við kynþáttaníði í 1-0 sigri gegn Dynamo Kiev um helgina.
Taison svaraði áhorfendum og var miður sín vegna málsins eftir leikinn, þó þetta sé ekki í fyrsta sinn sem hann verður fyrir kynþáttaníði í Úkraínu.
„Í samfélagi sem er fullt af rasisma er ekki nóg að vera ekki rasisti, þú verður að vera anti-rasisti," sagði Taison um málið.
Taison, sem verður 32 ára í janúar, hefur skorað 42 mörk í 237 leikjum á sjö árum hjá Shakhtar.
Athugasemdir