Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 12. nóvember 2022 12:40
Aksentije Milisic
Öll fjögur mörk Bailey fyrir Villa komið undir mismunandi stjórum
Mynd: EPA

Leon Bailey, leikmaður Aston Villa, hefur skorað fjögur deildarmörk fyrir liðið en hann kom til Aston Villa í ágúst mánuði árið 2021.


Hann hefur verið töluvert meiddur á tíma sínum hjá Aston Villa en hann skoraði gott mark í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar þegar Aston Villa skellti Manchester United í fyrsta leiknum undir stjórn Unai Emery.

Það sem var mjög áhugavert við þetta mark hjá Bailey var það að nú hafa öll fjögur deildarmörk hans fyrir félagið komið undir mismunandi stjórnum.

Það fyrsta kom undir stjórn Dean Smith og mark númer tvö kom undir stjórn Steven Gerrard. Gerrard var látinn taka pokann sinn á dögunum og í kjölfarið skoraði Bailey í stórsigri á Brentford undir stjórn Aaron Danks sem stýrði þeim leik.

Fjórða markið kom svo eins og áður segir undir stjórn Unai Emery í sigrinum gegn Manchester United.


Athugasemdir
banner
banner