12.11.26 - 18:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Skrifar frá PlovdivÁbyrgðarhlutverk sem Orri þrífst í - „Gerði auðvitað gríðarlega mikið fyrir mig"

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson sat fyrir svörum á fréttamannafundi á Hristo Botev leikvanginum í búlgörsku borginni Plovdiv í dag. Framundan er leikur Búlgaríu og Íslands í Þjóðadeildinni annað kvöld.
Orri var spurður út í verkefnið, hvað síðasti landsliðsgluggi hefði gert fyrir sig og andann í hópnum.

TENGT EFNI
Orri Steinn: Er að spila minn besta fótbolta á ferlinum
„Ég býst við erfiðum leik, býst við þeim öflugum í byrjun leiks eftir að hafa unnið síðasta leik og sem leikmaður myndi ég finna fyrir sjálfstrausti eins og þeim sigri. Við þurfum að vera tilbúnir frá fyrstu mínútu, vera með jafnmikla ákefð og ná að vera ofan á í byrjun," segir Orri um leikinn á morgun.
Þú komst svolítið þungur inn í síðasta glugga með rautt spjald á bakinu, hvað gerði sá gluggi fyrir þig og af hverju gengur betur núna?
„Síðasti gluggi gerði auðvitað gríðarlega mikið fyrir mig. Ég hef einhvern veginn haft þá tilfinningu þegar ég mæti í landsliðið að þá sé treyst á mig og ég hafi mikla ábyrgð. Mér finnst ég þrífast þar, vissi að ég myndi koma mér aftur á ról."
„Það erfiðasta var að taka það með mér eftir landsleikjahléið en það tókst mjög vel, þó að ég hafi verið í banni (í fyrsta leik), þá náði ég samt að klukka mörk og fullt af mínútum. Ég reyni að halda hausnum rólegum, og svo hjálpar auðvitað að skipta um umhverfi, hitta strákana og fara út að skoða heiminn með landsliðinu. Það hjálpar aðeins hausnum."
Orri hefur skorað fimm mörk í síðustu sex leikjum sínum en fyrir síðasta landsliðsverkefni, þar sem hann skoraði þrjú mörk, hafði hann skoraði eitt mark á tímabilinu fyrir Real Sociedad.
Hvernig er andinn í hópnum eftir allt umtalið í síðasta glugga?
„Ég upplifi ekkert öðruvísi núna. Það var auðvitað smá í lokin á síðasta glugga sem við settluðum allir. Við komum inn í þennan glugga með allt það að baki, með það mál útkljáð. Það var ekkert sem við höfum þurft að tala um í þessum glugga hingað til. Menn eru jákvæðir og spenntir fyrir leiknum á morgun og maður finnur fyrir hungri til að klára þetta sem fyrst, vinna vinnuna almennilega á morgun svo við þurfum ekki að hafa áhyggjur á mánudaginn," segir Orri.
Hér að neðan má hlusta á ítarlegt viðtal við Orra sem tekið var í upphafi vikunnar.