Fotbolti.net
12.11.26 - 16:40
Magnús Atlason

Óli Kristjáns: Meira tilfallandi heldur en strategía

Auglýsing
Ólafur Helgi Kristjánsson, þjálfari Íslands.

Ólafur Helgi Kristjánsson, þjálfari Íslands.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland gerði 1-1 jafntefli gegn Grikklandi í Laugardalnum eftir fjörugar lokamínútur. Fótbolti.net náði tali af Ólafi Helga Kristjánssyni þjálfara liðsins eftir leik.
Lestu um leikinn: Ísland U21 1 - 1 Grikkland U21
"Þetta var ekkert svekkjandi (leikur), en það sem var svekkjandi var að fá á sig mark þarna alveg í restina en þetta var mjög jafn leikur. Grikkirnir hörkulið og aðstæður erfiðar, hálfleikur núna þannig að mér líður bærilega með þennan leik, frammistöðuna."

Ísland komst yfir á 88. mínútu en náði ekki að sigla sigrinum heim. Hvernig fannst Óla Ísland bregðast við því að vera í forystu?

"Ég varð ekki var við það að við höfum farið að brjóta eitthvað meira. Eðlilega þegar annað liðið kemst yfir, eins og við gerðum, að Grikkirnir ætluðu sér að sækja og það var hvorki skipun frá einum eða neinum annað en að leikurinn sveiflaðist þannig. Auðvitað er það þannig að við eigum við ekki að vera að gefa ódýrar aukaspyrnur í kringum teiginn þegar við erum með menn í stöðu þar sem við getum vísað þeim frá. En ég held að það hafi verið meira tilfallandi heldur en einhver strategía."

Leikurinn var spilaður í íslenskum aðstæðum, hvernig sér Óli seinni leikinn öðruvísi fyrir sér?

"Við sáum alveg hvernig Grikkirnir voru glaðir að hafa jafnað. En einhvernveginn virkar tilfinningin á mig að þeir hafi haldið að þetta hafi hentað okkur vel. Þetta lið (Ísland) getur spilað fótbolta og hefur gert það. Þannig að okkar plan er að fara til Grikklands og ná okkar takti og spila hörkuleik og koma okkur áfram."

Sjáðu viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.