Real Madrid vann í gær spænska ofurbikarinn þegar liðið sigraði Atletico Madrid í vítaspyrnukeppni.
Eftir leik var Florentino Perez, forseti félagsins, spurður út í möguleg skotmörk á félagaskiptamarkaðnum.
Eftir leik var Florentino Perez, forseti félagsins, spurður út í möguleg skotmörk á félagaskiptamarkaðnum.
Hann var spurður út í þann möguleika að kaupa Paul Pogba frá Manchester United. Perez svaraði á spaugilegan hátt.
„Ég veit ekki hver Pogba er," sagði han og gekk í burtu úr viðtali við Riyadiya TV. Paul Pogba hefur margoft verið orðaður við Real Madrid og ætli Perez sé ekki orðinn þreyttur á sögusögnunum.
Athugasemdir