Fotbolti.net
13.01.24 - 11:00
Aksentije Milisic

Mourinho fengið fleiri rauð spjöld en leikmenn deildarinnar

Mourinho fengið fleiri rauð spjöld en leikmenn deildarinnar
Canon

Mynd: EPA

Jose Mourinho, þjálfari Roma á Ítalíu, fékk að líta á rauða spjaldið í miðri viku þegar Rómverjar lágu gegn Lazio í nágrannaslag í ítalska bikarnum.

Roma tapaði leiknum 1-0 en seint í leiknum fékk Mourinho rautt spjald fyrir að mótmæla kröftulega. Þetta var alls ekki hans fyrsta rauða spjald sem þjálfari liðsins.

Á síðustu tveimur tímabilum hefur Portúgalinn geðþekki fengið að líta á rauða spjaldið alls fimm sinnum og er það meira heldur en nokkur leikmaður deildarinnar á þessum tíma. Þá fékk Mourinho einnig rautt spjald og fjögurra leikja bann í Evrópudeildinni en hann fór mikinn eftir tap Roma gegn Sevilla í vítaspyrnukeppni í Búdapest í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Mourinho sé orðinn valtur í sessi en ef illa fer gegn AC Milan í deildinni á morgun gæti félagið skipt um þjálfara.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.