Fotbolti.net
13.01.25 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Motta eftir tólfta jafnteflið: Enginn pirraðri en við

Juve menn eru miklir jafntefliskóngar.

Juve menn eru miklir jafntefliskóngar.

Canon

Mynd: EPA

Juventus gerði 1-1 jafntefli við Torino í borgarslag helgarinnar en þetta var tólfta jafntefli Juve í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili.

Eftir nítján leiki er Juventus ósigrað í deildinni en er hinsvegar aðeins í fimmta sæti því þeir eru ekki að ná að breyta jafnteflum í sigra.
„Það er enginn pirraðri en við eftir þessi úrslit. Við spiluðum betur en andstæðingurinn og sköpuðum færi til að vinna þennan leik," segir Thiago Motta, stjóri Juventus.

„Við þurfum bara að halda áfram að leggja á okkur mikla vinnu og reyna að halda í jákvæðnina. Við erum á réttri leið en þurfum að bæta ákveðna þætti til að ná sigrum."

„Við erum að eiga í vandræðum með að klára leiki með sigrum, við þurfum að laga það ef við ætlum að halda okkur í baráttunni um Meistaradeildarsæti."

Juventus mætir Atalanta annað kvöld.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.