Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 13. febrúar 2020 21:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalski bikarinn: Ronaldo jafnaði í lokin gegn AC Milan
Ronaldo jafnaði af vítapunktinum.
Ronaldo jafnaði af vítapunktinum.
Mynd: Getty Images
Milan 1 - 1 Juventus
1-0 Ante Rebic ('61 )
1-1 Cristiano Ronaldo ('90 , víti)
Rautt spjald: Theo Hernandez, Milan ('72)

AC Milan og Juventus áttust við í fyrri leik liðanna í undanúrslitum ítalska bikarsins í kvöld.

Ekkert var skorað í fyrri hálfleiknum, en eftir um stundarfjórðung í senni hálfleiknum skoraði Ante Rebic fyrsta mark leiksins og kom heimamönnum í AC Milan yfir.

Um tíu mínútum síðar varð Milan fyrir áfalli þegar Theo Hernandez fékk að líta sitt annað gula spjald. Heimamenn voru því einum færri síðustu mínúturnar.

Milan virtist vera að landa sigrinum, en í uppbótartímanum fékk Juventus vítaspyrnu. Cristiano Ronaldo fór auðvitað á punktinn og skoraði.

Lokatölur 1-1, en seinni leikur þessara liða fer fram 4. mars næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner