Fotbolti.net
13.02.20 - 15:59
Elvar Geir Magnússon

Nýr leikmaður Chelsea líkir bransanum við brúðuleikhús

Hakim Ziyech.

Hakim Ziyech.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea mun fá Hakim Ziyech frá Ajax eftir tímabilið en það var staðfest í dag.

Daily Mail hefur birt grein þar sem reynt er að skyggnast inn í hugarheim leikmannsins.

Þar talar hann meðal annars um fótboltaheiminn í dag og líkir honum við brúðuleikhús.
„Það eru margar gervifígúrur sem eru að labba um fótboltavelli svo ég treysti fáum einstaklingum. Þetta er eitt stórt brúðuleikhús og það er bara að versna," segir Ziyech í viðtali sem var tekið nýlega.

„Brúðuleikhúsið reiðir sig á samfélagsmiðla. Þeir hafa eyðilagt þennan heim."

Þegar Instagram síða Ziyech er skoðuð virðist hann þó sjálfur taka virkan þátt í „brúðuleikhúsinu". Þar má m.a. sjá myndir af honum við rándýra Lamborghini bifreið og í VIP dýragarði í Dúbaí þar sem þeir ríku og frægu fá bara inngöngu.

Ziyech er 26 ára landsliðsmaður Marokkó og býr yfir öflugum sköpunarmætti. Hann ólst upp við talsverða fátækt og faðir hans lést þegar hann var ungur.

Heimild: Daily Mail

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.