Diljá Ýr Zomers er farin að blómstra á ný í norska boltanum þar sem hún hefur fengið stórt hlutverk og segir sjálfstraustið vera að skila sér aftur inn á völlinn.
„Það er bara geggjað. Mér líður vel þarna og sérstaklega bara svona í hópnum, mjög góður hópur. Fótboltinn hentar mér mjög vel, búin að fá að spila mikið á undirbúningstímabilinu og fá núna alveg slatta af mínútum í fyrstu leikjunum.“
Hún segir sjálfstraustið vera að skila sér inn á völlinn.
„Maður er bara að fá sjálfstraustið aftur og komast í sitt besta spilform. Alltaf gaman að fá að spila og sérstaklega koma inn marki líka.“
Diljá lýsir deginum hjá atvinnumanni í Noregi sem skipulögðum og krefjandi.
„Það er vakna og maður fær sér svona smá snarl heima áður en maður mætir svo upp á æfingarsvæði. Það er ekki morgunmatur fyrr en 10:30, þá förum við í morgunmat, svo er bara fundað, ræktin, æfing og meiri rækt. Svo er maður að koma heim kannski um fjögur leytið og þá er bara slakað þar til maður býr til kvöldmat og fer að sofa.“
Hún segir markmiðin með Brann vera skýr.
„Það er bara að verja titilinn, vinna titilinn aftur og komast í riðlakeppnina í meistaradeildinni.“
Diljá segir að hún vilji nýta tækifærin með landsliðinu þegar þau gefast og sína sinn leik.
„Vera óhrædd við að fara einn á einn en að sama skapi ver róleg á boltann og skila honum vel frá mér. Reyna að opna á möguleika fyrir aðra og helst koma inn marki! En það er bara aukaatriði.“



