Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 13. maí 2019 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Víkingur Ó. fær Ívar Örn frá KA (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Ólafsvík er búið að ganga frá lánssamningi fyrir Ívar Örn Árnason sem mun leika fyrir félagið í sumar.

Ívar Örn er 23 ára vinstri bakvörður KA sem lék að láni hjá Magna á síðasta tímabili.

Hann hefur spilað sex leiki með KA í efstu deild og á einn U21 landsleik að baki.

Ívar mun þó aðeins dvelja í Ólafsvík fyrri part sumars. Um miðjan ágúst heldur hann til Bandaríkjanna í háskólanám.
Athugasemdir
banner
banner