Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. maí 2022 10:53
Elvar Geir Magnússon
Mane ekki meðal tilnefndra í leikmann tímabilsins
Salah er sigurstranglegur.
Salah er sigurstranglegur.
Mynd: EPA
Búið er að opinbera hvaða átta leikmenn eru tilnefndir sem leikmaður tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Sadio Mane og Cristiano Ronaldo eru meðal manna sem ekki komast á listann.

Þessir eru tilnefndir:
Trent Alexander-Arnold (Liverpool)
Jarrod Bowen (West Ham)
Joao Cancelo (Manchester City)
Kevin de Bruyne (Manchester City)
Bukayo Saka (Arsenal)
Mohamed Salah (Liverpool)
Son Heung-min (Tottenham)
James Ward-Prowse (Southampton)

Áhugamenn hafa tækifæri til mánudags til að kjósa þann besta. Niðurstaðan þar verður lögð saman við kosningu fyrirliða og valdra sérfræðinga til að ákveða sigurvegara.

De Bruyne og Salah eru sigurstranglegir en báðir vonast til þess að vinna verðlaunin í annað sinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner