Fotbolti.net
13.05.23 - 21:30
Brynjar Ingi Erluson

Marija Radojicic spilar með Fylki í sumar (Staðfest)

Marija Radojicic spilar með Fylki í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fylkir

Hertz
Serbneska fótboltakonan Marija Radojicic hefur ákveðið að taka fram skóna með Fylki eftir þriggja ára fjarveru.
Marija, sem er fædd árið 1992, kom fyrst hingað til lands árið 2015 og spilaði fimm leiki með Val í efstu deild.

Hún hélt aftur út en snéri til Íslands árið 2018 og samdi þá við Fylki.

Á tveimur tímabilum spilaði hún 36 leiki og skoraði 19 mörk áður en hún lagði skóna á hilluna í byrjun árs 2020.

Marija kom við sögu í 6-0 sigri Fylkis gegn KR í Lengjudeildinni í gær ásamt því að spila einn leik í Mjólkurbikarnum en hún hefur samið við félagið um að spila út þessa leiktíð.

Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir Fylki þar sem Marija getur leyst allar stöður í sóknarlínunni.

Marija var hluti af serbneska landsliðinu er hún var síðast á mála hjá Fylki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.