Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
   mið 13. maí 2026 14:24
Kári Snorrason
Arnar fer yfir valið - „Ekki á hverjum degi sem maður mæti Messi og félögum“
Eimskip
Arnar Gunnlaugsson.
Arnar Gunnlaugsson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ísland mætti Argentínu á HM 2018.
Ísland mætti Argentínu á HM 2018.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari opinberaði tvískiptan hóp sem mætir Japan og Argentínu í vináttuleikjum.

Ísland mætir fyrst Japan í Tókýó 31. maí og spilar svo gegn Argentínu í Alabama 10. júní í Bandaríkjunum. Bæði lið eru í undirbúningi fyrir HM.

Fótbolti.net ræddi við Arnar um verkefnið og valið á hópnum.

„Það er ekki á hverjum degi sem maður mæti Messi og félögum, ríkjandi heimsmeistarar og síðasti leikur þeirra fyrir HM. Sá leikur mun vekja athygli. Japan eru búnir að vera hrikalega sterkir síðustu ár, verið ofarlega á FIFA-listanum.“

„Þetta var ekki erfið sala til leikmanna þrátt fyrir löng ferðalög. Allir leikmenn voru tilbúnir í þetta verkefni. Svo byrjaði samningaviðræður við félög og þetta varð niðurstaðan og ég er mjög sáttur við hana.“

„Það voru ákveðnar hömlur settar í Japans-leikinn, leikmenn sem var ekki hægt að velja þangað. Það auðveldaði kannski ákvörðunina. Svo var kannski beðið eftir einhverjum niðurstöðum um hvað félög vildu hleypa okkur í. Það voru líka samtöl við leikmenn og þess háttar. Eftir þú lítur á báða þessa hópa eru þeir mjög spennandi.“

Nánar er rætt við Arnar í spilaranum hér að ofan


Slapp
banner
banner
banner
banner