Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   mið 13. maí 2026 13:45
Elvar Geir Magnússon
Augljóst að það var vandamál með markverði - „Hann var hrikalega jákvæður“
Eimskip
Ögmundur, sem er 36 ára, á fimmtán landsleiki fyrir Ísland á ferilskrá sinni.
Ögmundur, sem er 36 ára, á fimmtán landsleiki fyrir Ísland á ferilskrá sinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hákon Rafn er í hópnum gegn Japan.
Hákon Rafn er í hópnum gegn Japan.
Mynd: KSÍ
Athygli vekur að markvörðurinn Ögmundur Kristinsson í Val var valinn í landsliðshóp Íslands sem mun mæta Japan í vináttulandsleik þann 31. maí í Tókýó.

Ögmundur hefur ekkert spilað með Val á tímabilinu og hann verið úti í kuldanum. Honum var tjáð á Hlíðarenda að krafta hans yrði ekki óskað.

Leikurinn gegn Japan er utan landsleikjaglugga og því púsluspil fyrir Arnar Gunnlaugsson að setja saman hóp. Besta deildin verður í gangi þarna og ákveðið að velja engan sem er að spila hér á Íslandi.

Hákon Rafn Valdimarsson markvörður Brentford er í hópnum gegn Japan og mun að öllum líkindum spila leikinn. Ögmundur hefur verið valinn til að vera honum til halds og trausts.

Arnar var spurður út í valið á Ögmundi á fréttamannafundi í dag.

„Íslenska deildin er í gangi svo við útilokum hana. Noreg og Svíþjóð líka. Svo fóru af stað viðræður við Brentford og Midtjylland varðandi Hákon og Elías. Við erum bara ánægð með að Hákon geti spilað Japansleikinn og svo verða þeir báðir gegn Argentínu," segir Arnar.

„Það er augljóst að það var vandamál með markmenn og þá fórum við að leita í hvaða týpur gætu verið í hóp, sterkir karakter sem gætu verið til taks. Nafn Ögmundar kom fljótt upp. Hann var hrikalega jákvæður, sem ég er mjög þakklátur fyrir. Ég vænti þess að hann gefi mikið af sér og komi inn með sína reynslu og nái að halda svona aðstæður."

„Við eigum von á því að kynna þriðja markvörðinn inn á næstu dögum. Það eru viðræður í gangi við einhver félög. Við förum væntanlega með þrjá markverði út."

Ögmundur, sem er 36 ára, á fimmtán landsleiki fyrir Ísland á ferilskrá sinni.
Slapp
banner
banner
banner