Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   mið 13. maí 2026 15:00
Kári Snorrason
Átján ára danskur meistari - „Stórkostlegt að fá að vera hluti af þessu liði“
Mynd: AGF
Mynd: AGF
Mynd: INSTAGRAM/AGF
AGF tryggði sér danska meistaratitilinn á sunnudag með 2:0 sigri gegn Bröndby. Þetta er fyrsti meistaratitill félagsins í 40 ár og verður að teljast nokkuð óvæntur, þar sem liðið endaði í sjötta sæti á síðasta tímabili.

Hinn átján ára gamli Tómas Óli Kristjánsson braust inn í aðallið AGF á tímabilinu og kom við sögu í níu deildarleikjum. Tómas, sem er uppalinn hjá Stjörnunni, gekk til liðs við danska félagið fyrir um tveimur árum.

Fótbolti.net ræddi við Tómas eftir að liðið tryggði sér titilinn.

Sá fyrsti í 40 ár
„Tilfinningin var bara frábær, sérstaklega þar sem það hefur ekki gerst í 40 ár fyrir AGF. Ótrúlegt að vinna þennan titil og vera hluti af þessu afreki.“

Midtjylland missteig sig í toppbaráttunni og gerði jafntefli við Nordsjælland nokkrum klukkutímum fyrir leik AGF og þar með var möguleiki að tryggja titilinn. Tómas segir undirbúning ekkert hafa breyst þrátt fyrir úrslit MIdtjylland.

„Nei, fókusinn okkar var bara á að vinna Bröndby. Auðvitað vissum við að ef Midtjylland mistækist að vinna sinn leik yrði titillinn okkar ef við myndum vinna Bröndby. Þannig einbeiting okkar var bara á að vinna okkar leik.“

Svekkjandi að fá ekki að koma inn á?
„Auðvitað vilja allir spila svona stóran leik en það mikilvægasta er að klára titilinn og vera partur af því.“

Ólýsanlegur fögnuður
Hvernig var stemningin á leiknum sjálfum?
„Stemningin var ótrúleg, sérstaklega þegar við skoruðum snemma, það bætti enn meira í stemninguna eftir seinna markið þegar við vissum að við værum nær titlinum. Við eigum rosalega stuðningsmenn sem gjörsamlega tóku yfir stemninguna.“

„Fögnuðurinn var bara ólýsanlegur, við sungum með stuðningsmönnunum vel eftir leik. Svo var vel fagnað í klefanum eftir leik, þvílík heimferð og var svo fagnað fram eftir nóttu í Árósum.“

„Þetta er risastórt fyrir okkur leikmenn og klúbbinn. Borgin og stuðningsmenn munu fagna langt fram eftir sumri. Svo er bara síðasti leikur næsta sunnudag sem við viljum að sjálfsögðu vinna og klára tímabilið með stæl.“

Stórkostlegt að vera hluti af þessu liði
Hvernig líturu til baka á þetta fyrsta tímabil hjá þér?
„Ef ég lít til baka var þetta bara frábært fyrsta tímabil fyrir mig, stórkostlegt að fá að upplifa að vera partur af þessu liði og árangrinum sem við náðum.

Það sem stendur upp úr þegar ég spilaði fyrsta leikinn, byrjað leik og að hafa unnið þennan titil með liðinu. Markmiðið mitt fyrir næsta ár er bara að bæta minn leik enn frekar og reyna að spila sem flestar mínútur og leiki,“
sagði Tómas að lokum.
Slapp
banner
banner