Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
banner
   mið 13. maí 2026 23:08
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Davíð Smári pirraður: Vorum einhvern veginn ekki tilbúnir í fightið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ekki vel. Töpuðum fyrir miklu miklu betra liði í dag. Ákveðið sjokk hvernig við mættum inn í leikinn, fyrri hálfleikurinn. Vorum einhvern veginn ekki tilbúin í fightið, tilbúnir í bardagann. Mættum liði sem var með miklu hærra orkustig en við. Já, vond tilfinning eftir leikinn" sagði Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur eftir 5-2 tap í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins gegn Aftureldingu.


Lestu um leikinn: Afturelding 5 -  2 Njarðvík

Voru þið ekki nægilega tilbúnir fyrir leikinn?

„Mér fannst það allaveganna sjást á vellinum að við vorum ekki tilbúnir í bardagann, mér fannst við aldrei sjást. Ég meina við sjáum föstu leikatriðin, þeir eru undan í alla bolta hvort sem það er í okkar boxi eða þeirra boxi. Við vorum með nokkrar hornspyrnur sóknarlega, þar sem það var frábært delivery, en þeir eru á undan í það allt, alir lausir boltar inn í teig. Við virkuðum bara orkulausir og nú þarf bara að fara í það að skoða það. En hrós á Aftureldingar liðið, þeir hittu á daginn sinn og við hittum alls ekki á okkar dag. Það verður athyglisvert að skoða þennan leik og horfa á hann og reyna að finna ástæður og orsakanir fyrir ekki góðri frammistöðu."

Þegar Afturelding skorar annað og þriðja markið sitt, finnst þér Njarðvík slökkva á sér?

„Já, ég meina það kemur kafli í leiknum, þarna tuttugu mínútna kafli í leiknum þar sem við erum algjörlega off. Við reyndum að adressa það með að breyta um leikkerfi. En þetta snerist aldrei um eitthvað taktískt upplegg þessi leikur. Við vorum bara andlausir, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við ætluðum að koma út í seinni hálfleikinn með meiri orku og mér fannst við einhvern veginn gera það. En við réðum ekki við tempoið hjá Aftureldingar liðinu í dag og við vorum ekki klárir í þennan leik, virtist vera."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan


Slapp
banner