Leikurinn ekkert eðlilega mikilvægur - „Hef sjálfur ekki upplifað það"
Auglýsing

Á landsliðsæfingunni í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á landsliðsæfingunni í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég held þetta sé bara mjög góð uppskrift," sagði Jón Dagur Þorsteinsson um komandi leik Íslands og Slóvakíu í undankeppni EM sem fram fer á þjóðhátíðardaginn á Laugardalsvelli.
„Vonandi verður bara góð stemning, gott veður og vonandi náum við í úrslit. Ég er búinn að vera með frá fyrstu æfingu, lengra síðan ég spilaði síðast þannig það var bara mjög gott að hitta liðið og við erum búnir að ná góðri æfingaviku og erum klárir."

Jón Dagur sagðist, aðspurður út í skilaboð frá Åge í aðdraganda leiksins, á þessum tímapunkti ekkert vita varðandi hlutverk í liðinu. „Það eru ennþá nokkrir dagar í leik þannig það mun bara koma í ljós."
„Nei, ekkert endilega þannig (sem úrslitaleik), það er nóg eftir í þessu; átta leikir og við erum komnir með þrjú stig eftir tvo leiki. En auðvitað vitum við að þetta er ekkert eðlilega mikilvægur leikur."
„Já, algjörlega. Ég hef sjálfur ekki upplifað það, ég byrjaði að spila á Laugardalsvelli þegar það var covid og enginn á vellinum. Svo hefur ekkert verið frábær mæting eins og við vitum, en vonandi verður fullt af fólki á vellinum og bara geggjað."
„Mér líst vel á nýja landsliðsþjálfarann, kemur mjög vel inn í þetta og mun nýtast okkur vel held ég. Mér finnst vera góð stemning í hópnum og jákvæðni yfir þessu. Það er frábær byrjun og vonandi skilar það sér með góðum úrslitum," sagði Jón Dagur.
Í viðtalinu, sem sjá má í heild sinni efst í spilaranum, ræðir Jón Dagur einnig um tímabilið í Belgíu, sitt gamla félag AGF og uppeldisfélagið HK.