Fotbolti.net
13.07.22 - 14:30
Elvar Geir Magnússon

Josh Doig til Hellas Verona (Staðfest) - Kynntur að hætti James Bond

Josh Doig.

Josh Doig.

Canon

Mynd: Getty Images

Hellas Verona hefur fengið tvítugan Skota, Josh Doig, frá Hibernian.

Þessi U21 landsliðsmaður Skotlands hefur verið orðaður við ensk úrvalsdeildarfélög en hefur nú skrifað undir hjá ítalska liðinu Verona til sumarsins 2026.
Hann hefur verið kynntur hjá nýjum vinnuveitendum með myndbandi með James Bond njósnarastefinu.

‘My name is Doig, Josh Doig.’ segir hann í myndbandinu.

Doig er fjölhæfur bakvörður sem hefur spilað 78 aðalliðsleiki fyrir Hibernian og skoraði eitt mark.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.