13.07.22 - 07:42
Elvar Geir Magnússon
Kristall í Rosenborg (Staðfest) - Spilar tvo leiki í viðbót með Víkingi

Kristall í treyju Rosenborg.

Mynd: Rosenborg

Kristall í treyju Rosenborg.

Mynd: Rosenborg
Rosenborg hefur kynnt Kristal Mána Ingason sem nýjan leikmann félagsins. Í kynningarmyndbandi á miðlum norska stórliðsins sést Kristall taka 'sussið' og þá segist hann hafa strax orðið spenntur þegar hann heyrði af áhuga félagsins og ákvörðunin einföld.
Kristall, sem er tvítugur, er keyptur frá Víkingi og skrifar undir samning út 2026 tímabilið. Hann mun þó leika tvo deildarleiki í viðbót með Víkingum áður en hann heldur til Noregs í lok mánaðarins.
Víkingur á FH og Stjörnuna í næstu tveimur umferðum Bestu deildarinnar en Víkingar eru í öðru sæti.
Kristall hefur farið með himinskautum í sóknarleik Víkinga og einnig spilað frábærlega með U21 landsliðinu.
Rosenborg er sigursælasta lið Noregs og eitt stærsta félag á Norðurlöndum. Liðið endaði í fimmta sæti á síðasta tímabili og er einnig í því sæti núna í norsku úrvalsdeildinni.
Mikael Dorsin íþróttastjóri hjá Rosenborg segir við heimasíðu félagsins að Kristall sé ungur og spennandi leikmaður sem Rosenborg hafi mikla trú á.

Velkommin, Kristall 🇮🇸 🤫 pic.twitter.com/DkSsiwuY6c
— Rosenborg Ballklub (@RBKfotball) July 13, 2022

Kristall í leik með U21 landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð