Raheem Sterling til Chelsea (Staðfest)

Raheem Sterling á Laugardalsvelli. Hann er genginn í raðir Chelsea.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Raheem Sterling á Laugardalsvelli. Hann er genginn í raðir Chelsea.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Chelsea hefur staðfest 50 milljón punda kaup félagsins á enska landsliðsmanninum Raheem Sterling. Sterling sem er 27 ára gamall skrifaði undir fimm ára samning við Lundúnafélagið.
Hann kemur til félagsins frá Manchester City en þangað hafði hann komið frá Liverpool árið 2015 á 49 milljónir punda. Hann skoraði 131 mörk í 339 leikjum fyrir City og varð fjórum sinnum Englandsmeistari.
Sterling á bað baki 77 landsleiki fyrir hönd Englands en hann er fyrstu stóru kaup Thomas Tuchel hjá Chelsea síðan eigendaskiptin urðu hjá félaginu.
„Ég er frá London og þar byrjaði þetta allt hjá mér, það er æðislegt að fá núna tækifæri til að spila fyrir framan vini mína og fjölskyldu í hverri viku á Stamford Bridge. Ég hlakka svo mikið til að hitta stuðningsmennina þarna fljótlega," sagði Sterling frá Bandaríkjunum þar sem liðið er í æfingabúðum.
Blue is the colour! 🔵#SterlingIsChelsea pic.twitter.com/l7b8U7WmIh
— Chelsea FC (@ChelseaFC) July 13, 2022
