Víkingur framlengir við fjóra lykilmenn (Staðfest)

Stöllurnar fjórar við undirritunina.

Mynd: Víkingur R.

Hulda Ösp er búin að framlengja.

Mynd: Víkingur R.

Stöllurnar fjórar við undirritunina.

Mynd: Víkingur R.

Víkingur R. hefur framlengt samninga við fjóra lykilmenn í meistaraflokki kvenna, þar á meðal Dagbjörtu Ingvarsdóttur fyrirliða.
Dagbjört er miðvörður fædd 1996 og hefur verið lykilleikmaður frá komu sinni til Víkings fyrir einu og hálfu ári síðan. Hún á 41 leik að baki fyrir Víking en þar áður var hún í lykilhlutverki hjá uppeldisfélaginu Völsungi á Húsavík.
Hulda Ösp Ágústsdóttir er fædd 1999 og leikur úti á vinstri kanti. Hún hefur verið hjá Víkingi síðustu tvö ár en er uppalin hjá Völsungi líkt og Dagbjört. Hulda Ösp, sem hefur skorað 4 mörk í 10 leikjum í sumar, leikur með Appalachian State University í bandaríska háskólaboltanum á veturnar. Auk þess að vera markheppin þá er Hulda dugleg að gefa stoðsendingar enda með frábæran spyrnufót.
Freyja Friðþjófsdóttir er uppalin hjá Val en reyndi fyrir sér í norsku 2. deildinni áður en hún kom aftur til Reykjavíkur. Hún er hægri bakvörður fædd árið 2000 og hefur verið leikmaður Víkings undanfarin tvö ár þar sem hún hefur fest sig vel í sessi í byrjunarliðinu.
Að lokum er hin fjölhæfa Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir einnig búin að skrifa undir samning. Hún er yngst af þessum fjórum, fædd 2003, og jafnframt fjölhæfust þar sem hún hefur spilað á miðjunni, köntunum, í vinstri bakverði og sem fremsti sóknarmaður. Svanhildur var aðeins 16 ára gömul þegar hún steig sín fyrstu skref með meistaraflokki og lék 10 leiki í Pepsi Max-deildinni sumarið 2019.
Hún á 83 leiki að baki fyrir Víking og HK/Víking og er sú þriðja leikjahæsta í hópnum þrátt fyrir ungan aldur. Í sumar er Svanhildur búin að skora 4 mörk í 11 leikjum.
„Víkingar vænta mikils af stúlkunum í komandi leikjum og merkja metnað þeirra til að koma liðinu í hóp þeirra bestu fyrir næsta ár. Til hamingju með samningana stúlkur og allir Víkingar," segir á vefsíðu Víkings.
Víkingur er í 4. sæti Lengjudeildarinnar með 19 stig eftir 9 umferðir, fjórum stigum eftir toppliðunum.
Heimild: Vikingur.is

Hulda Ösp er búin að framlengja.

Mynd: Víkingur R.
