Ásgeir frábær gegn sínum fyrrum félögum: Gerir þetta ennþá sætara
Auglýsing

Ásgeir Helgi Orrason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásgeir Helgi Orrason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik tók á móti Keflavík á Eirarvellinum í Kópavogi í kvöld og fóru þeir grænklæddu heim með þrjú stig eftir 2-1 sigur á gestunum. Ásgeir Helgi Orrason var valinn maður leiksins af fótbolta.net í kvöld og mætti í viðtal að leik loknum.
Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 1 Keflavík
"Bara drulluvel gert, það er erfitt að vera 1-0 undir í hálfleik gegn góðu Keflavíkurliði. Þetta er karakter, við gerðum þetta líka í síðasta leik uppi á skaga, þetta er ekkert létt þannig að ég er bara ánægður með liðið."
"Það þýðir ekkert að gefast upp í hálfleik. Það eru 45 mínútur eftir og við herjum á þá hægra megin. Dassi [Dagur Örn Fjeldsted] náði góðum kross, Kiddi Jóns mætir á fjær og við lokuðum þessu bara. Yfirleitt í fótbolta þegar lið er undir þá herjar það svolítið á hitt liðið og það heldur bara áfram þegar það jafnar. Við bara hættum ekkert og kláruðum þetta.
Ásgeir átti frábæran leik en hvað fannst honum sjálfum um sinn leik?
"Það mætti alveg segja það að þetta hafi verið minn besti leikur í sumar á móti mínum gömlu félögum sem gerir þetta ennþá sætara. Ég var mjög ánægður með það" sagði Ásgeir Helgi
Allt viðtalið við Ásgeir Helga má finna í spilaranum hér að ofan