Fotbolti.net
13.08.13 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Sá besti í Championship til WBA (Staðfest)

Sá besti í Championship til WBA (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

WBA hefur fengið framherjann Matej Vydra á láni frá Udinese en samningurinn gildir út tímabilið.

Vydra sló í gegn á láni hjá Watford á síðasta tímabili en hann skoraði 22 mörk og var valinn besti leikmaðurinn í Championship deildinni.
Vydra er í verkefni með tékkneska landsliðinu í Ungverjalandi en hann mun síðan hefja æfingar með WBA fyrir leikinn gegn Southampton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardag.

,,Hann er gæða framherji sem bætist í hóp þeirra þriggja framherja sem við höfum hér,\" sagði Steve Clarke stjóri WBA.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.