13.08.13 - 11:49
Elvar Geir Magnússon
Stewart Downing til West Ham (Staðfest)

Downing sló fyrst í gegn hjá Middlesbroug.

Mynd: Getty Images

West Ham hefur gengið frá kaupunum á vængmanninum enska Stewart Downing frá Liverpool. Kaupverðið er um 6 milljónir punda en Downing skrifaði undir fjögurra ára samning eftir að hafa staðist læknisskoðun.
Hann er þriðja stóra nafnið sem Stóri Sam Allardyce fær frá Liverpool á stjóratíma sínum hjá West Ham en áður hafði hann krækt í Joe Cole og Andy Carroll.
„Ég er mjög spenntur. Það er frábært tækifæri fyrir mig að vera hérna. Þetta er frábært félag. Ég er til í slaginn fyrir fyrsta leik sem er gegn Cardiff City. Ég er í fínni leikæfingu og þetta ætti ekki að vera neitt vandamál,\" sagði Downing eftir undirskriftina.
„Þetta gerðist allt mjög snöggt en ég er mjög spenntur,\" sagði Downing en Liverpool keypti leikmanninn á 20 milljónir punda fyrir aðeins tveimur árum.
Hann fékk að vita það frá Brendan Rodgers fyrir tímabilið að hann myndi ekki vera í lykilhlutverki á komandi tímabili. Newcastle sýndi honum áhuga en gerði ekki formlegt tilboð.