Ítalska félagið Fiorentina hefur fengið til sín miðjumanninn Edimilson Fernandes frá West Ham.
Í tilkynningu á heimasíðu Fiorentina segir að Edimilson hafi komið á lánssamningi út tímabilið en Fiorentina hefur möguleika á að kaupa hann eftir tímabilið.
Í tilkynningu á heimasíðu Fiorentina segir að Edimilson hafi komið á lánssamningi út tímabilið en Fiorentina hefur möguleika á að kaupa hann eftir tímabilið.
West Ham borgaði 6,4 milljónir evra fyrir þennan 22 ára leikmann sumarið 2016 en hann kom við sögu í 48 leikjum á tveimur tímabilum.
Hann er frændi Gelson Fernandes sem lék með Chievo og Udinese.
Athugasemdir