Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 13. ágúst 2018 18:48
Ingólfur Páll Ingólfsson
Kevin Gameiro til Valencia (Staðfest)
Gameiro er nú mættur til Valencia.
Gameiro er nú mættur til Valencia.
Mynd: Getty Images
Kevin Gameiro hefur yfirgefið Atletico Madrid eftir tvö ár hjá félaginu og gæti nú myndað eitraða framlínu með Michy Batshuayi á Mestalla leikvanginum.

Búið er að kynna Gameiro sem leikmann Valencia og hann gæti nú spilað sinn fyrsta leik gegn sínu fyrrum liði.

Franski landsliðsmaðurinn gekk til liðs við Atletico árið 2016 eftir að hafa heillað hjá Sevilla en var hinsvegar lítið notaður þrátt fyrir að hafa kostað 29 milljónir punda á sínum tíma.

Gameiro byrjaði bara 11 leiki á síðasta tímabili í La Liga en tókst þó að skora sjö sinnum fyrir liðið. Atletico hefur hinsvegar styrkt sig vel í sumar og því var hinn 31. árs gamli Gameiro seldur til Valencia fyrir 14 milljónir punda.



Athugasemdir
banner
banner
banner