Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mán 13. ágúst 2018 19:00
Elvar Geir Magnússon
Locatelli frá Milan til Sassuolo (Staðfest)
Locatelli fagnar marki gegn Juventus 2016.
Locatelli fagnar marki gegn Juventus 2016.
Mynd: Getty Images
Ítalski U21-landsliðsmaðurinn Manuel Locatelli hefur gengið í raðir Sassuolo frá AC Milan.

Talið er mögulegt að samningurinn innihaldi klásúlu um að Milan geti keypt leikmanninn aftur til baka .

Þessi tvítugi miðjumaður lék 63 leiki fyrir Milan, skoraði tvö mörk og átti eina stoðsendingu.

Hann skoraði eftirminnilegt mark gegn Juventus í október 2016 en féll aftarlega í goggunarröð Milan á síðasta tímabili.

Sassuolo hafnaði í ellefta sæti ítölsku A-deildarinnar á síðasta tímabili en AC Milan í því sjötta.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner