Fotbolti.net
13.08.26 - 21:28
Kristján Hrafn Kristjánsson

Badu: Sjálfstraustið hjá liðinu hefur ekki verið mikið

Auglýsing
Daniel Badu þjálfari Vestra

Daniel Badu þjálfari Vestra

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Daniel Badu og hans menn tóku á móti ÍR í 18. umferð Lengjudeildarinnar fyrr í kvöld. Leikurinn fór 1-0 fyrir Vestra og þetta var fyrsta sigur liðsins síðan 21. júní.

Fótbolti.net var á leiknum og ræddi við Daniel Badu þjálfara Vestra eftir leik.

Lestu um leikinn: Vestri 1 - 0 ÍR

Það er langur tími síðan við unnum leik og það er búið að vera erfitt. Það hefur sést að sjálfstraustið hjá liðinu hefur ekki verið mikið. Vonandi kemur það núna eftir að við unnum leik". Sagði Badu eftir góðan sigur gegn ÍR.

Leikurinn var rólegur framan að en eftir mark Vestra þá lifnaði aðeins við leiknum. 

Við vorum með góða stjórn á leiknum, en við vorum ekki nógu hraðir að opna þá, þeir eru þéttir og við vorum alltaf að hugsa um að þeir væru hættulegir í skyndisóknum. Við vorum að passa hvað við missum boltann og velja svæði sem við getum tapað boltanum". 


Ibrahima Balde skoraði eina mark leiksins og var góður í liði Vestra í dag. 

„Ég var mjög ánægður með Ibra og hvað hann gaf liðinu, bæði með boltann og án hans, hann er góður leiðtogi og hann steig vel upp í dag".


Fyrr í vikunni var brassinn Edson Gomes seldur til aserska liðsins Qabala í efstu deild Aserbaísjan, hvað þýðir það fyrir liðið að missa hann?

Edson var mjög góður inn á vellinum og æfði alltaf vel, hann var alltaf til taks og ég óska honum góðs gengis. Devin er kominn inn og Albert Ingi getur einnig spilað miðvörð. Þegar ein hurð lokast þá opnast önnur".


Vestri fer norður á Húsavík í næstu umferð og spilar gegn Völsungi, hvernig sérðu þann leik fyrir þér?

„Borja er búinn að gera góða hluti og liðið hefur bætt sig mikið síðan við spiluðum á móti þeim. Þetta er ekki lengsta ferðalagið sem við erum búnir að fara í svo 6-7 klukkutímar er ekkert fyrir okkur". 

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.