13.08.26 - 19:45
Brynjar Ingi Erluson
Elías Rafn og Kristian Nökkvi áfram - Alex Freyr og Siggi Raggi úr leik

Twente mætir Qarabag í umspilinu

Mynd: EPA

Twente mætir Qarabag í umspilinu

Mynd: EPA
Elías Rafn Ólafsson og Kristian Nökkvi Hlynsson eru báðir komnir áfram í umspil Sambandsdeildar Evrópu.
Kristian Nökkvi Hlynsson var í byrjunarliði Twente sem gerði 3-3 jafntefli við Dunajska Streda frá Slóvakíu.
Twente var svo gott sem komið áfram fyrir leikinn eftir 6-0 stórsigur í fyrri viðureigninni og vann einvígið samanlagt, 9-3.
Hollenska liðið mætir Qarabag í umspilinu en Aserarnir slógu Vestra út fyrr í forkeppninni.
Elías Rafn Ólafsson stóð í marki Midtjylland sem vann írska liðið Bohemians, 3-2, og einvígið samanlagt, 5-2. Midtjylland mætir Rijeka frá Króatíu í umspilinu.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson og lærisveinar hans í NSÍ Runavík eru hins vegar úr leik eftir 2-2 jafntefli gegn Lugano. Svissneska liðið vann einvígið samanlagt, 4-2. Alex Freyr Elísson kom inn af bekknum hjá NSÍ.