Fotbolti.net
13.08.26 - 20:32
Haraldur Örn Haraldsson

Sölvi Geir: Við náðum að skapa smá spennu

Auglýsing
Sölvi var ánægður með frammistöðuna en svekktur með úrslitin

Sölvi var ánægður með frammistöðuna en svekktur með úrslitin

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er svekktur að vera dottinn úr keppninni," sagði Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga eftir 3-2 sigur í leik kvöldsins en á endanum 5-3 tap í einvíginu gegn Thun frá Svisslandi.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 2 Thun

„Ég er ánægður með frammistöðu leikmanna í dag, mest megnis. Ég er náttúrulega ekki sáttur með Thun mörkin, það eru klaufaleg mörk sem við fáum á okkur. Við þurfum að læra að vera með fókusinn í 90 mínútur og ekki slökkva á okkur. Þetta voru klaufaleg mörk sem við fáum á okkur, lítil smáatriði sem klikka og á þessu stigi er bara refsað fyrir það, og okkur var refsað illa. Að sama skapi er ég mjög ánægður með karakterinn í liðinu, þeir hengja ekki haus og gefast ekki upp. Þó að þeir skora fyrsta markið og þá er staðan 4-0 í einvíginu. Ég er ánægður með að menn héldu haus, og gáfust ekki upp, bara út með kassann og héldu áfram að spila okkar bolta og koma sér aftur inn í leikinn. Við náðum að skapa smá spennu með því að komast 3-2 yfir og mér fannst við alveg eiga skilið að það myndi detta inn eitt í seinni part seinni hálfleiks. Þá hefði þetta verið alvöru spenna hérna í lokin, en því miður gekk það ekki," sagði Sölvi.

Gestirnir töfðu mikið í leiknum og portúgalski dómari leiksins var yfirleitt lengi að grípa þar inn. Þá fengu þjálfarar Víkinga, Sölvi og Aron Baldvin báðir gult spjald fyrir tuð. Þannig það er óhætt að segja að leikurinn hafi verið frústrerandi á köflum.

„Það er mikil spenna, þeir að tefja auðvitað. Þeir sjá að við erum að eflast og þeir halda í sitt. Mér fannst dómarinn slakur í dag, þó að ég nenni ekki að fara eitthvað nánar út í það. Þá fannst mér hann geta gert betur. Það er hiti í leiknum, menn vilja vinna og þá koma oft gulu spjöldin með," sagði Sölvi.

Gunnar Vatnhamar er á förum frá félaginu og félagsskiptaglugginn var að loka hér heima. Víkingar hafa ekki tekið neinn leikmann inn í staðin, en Sölvi segist ánægður með hópinn.

„Ég er bara mjög sáttur með hópinn. Við erum með frábæra hafsenta sem geta tekið við. Svo er Sölvi Stefánsson, það fer að nálgast í hann. Þannig við erum bara mjög sáttir við stöðuna eins og hún er í dag," sagði Sölvi.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Stígur Diljan skoraði annað mark Víkinga

Stígur Diljan skoraði annað mark Víkinga

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stuðningsmenn beggja liða voru frábærir í dag

Stuðningsmenn beggja liða voru frábærir í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.