Fotbolti.net
13.08.26 - 14:34
Elvar Geir Magnússon

Tielemans biður stuðningsmenn Villa afsökunar

Youri Tielemans.

Youri Tielemans.

Canon

Mynd: EPA

Youri Tielemans hefur beðið stuðningsmenn Aston Villa afsökunar eftir að hann sagðist hafa farið til stærra félags þegar hann gekk til liðs við Manchester United í sumar.

Hann sagði að sum félög væru ofar Aston Villa og United væri eitt af þeim og fóru ummælin í taugarnar á mörgum stuðningsmönnum Villa.

„Ég ætlaði aldrei að móðga neinn eða félagið með orðum mínum í fjölmiðlum. Eg ber mikla virðingu fyrir Aston Villa og er þakklátur fyrir síðustu þrjú ár,“ skrifaði hann á samfélagsmiðla.

„Ég verð að viðurkenna mistök mín og biðjast afsökunar á orðavalinu. Ég mun vanda mig betur í framtíðinni."
Þessi 29 ára belgíski miðjumaður fór til Old Trafford í sumar á fimm ára samningi frá Villa, eftir að United virkjaði riftunarákvæði í samningi hans sem hljóðaði upp á 35 milljónir punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.