13.10.26 - 20:32
Magnús Atlason
Þorsteinn um Portúgal: Það eru þið og sagnfræðingar sem skrifa um fortíðina

HM draumurinn úr sögunni eftir 4-1 tap gegn Portúgal. 11. október 2023.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Eftir að það varð endanlega ljóst að Ísland mætir Portúgal í úrslitum umspilsins fyrir HM, hefst undirbúningur hjá Þorsteini Halldórssyni landsliðsþjálfara fyrir leikina. Leikirnir verða spilaðir í lok nóvember og byrjun desember.
Lestu um leikinn: Ísland 5 - 0 Króatía
"Örugglega byrjar maður að skoða Portúgal á fimmtudaginn. Nú er bara vinna framundan að undirbúa sig fyrir Portúgal."
Ísland tapaði gegn Portúgal í umspili fyrir HM fyrir fjórum árum síðan. Þorsteinn var spurður hvort einvígið sitji eftir í leikmönnum liðsins.
"Nei, engan veginn, engar áhyggjur af því."
"Að sjálfsögðu er þetta leikur sem er hundfúlt að tala um en hver leikur og hvert einvígi á sitt líf og það þýðir ekkert að dvelja við eitthvað svona. Þetta snýst alltaf bara um nútímann. Það eru þið og sagnfræðingar sem skrifa um fortíðina."