Fotbolti.net
14.01.24 - 22:23
Brynjar Ingi Erluson

Afríkukeppnin: Klaufagangur kostaði Gana

Gana tapaði fyrir Grænhöfðaeyjum

Gana tapaði fyrir Grænhöfðaeyjum

Canon

Mynd: EPA

Gana 1 - 2 Grænhöfðaeyjar
0-1 Jamiro Monteiro ('17 )
1-1 Alexander Djiku ('56 )
1-2 Garry Rodrigues ('90 )
Ganamenn fengu óvæntan skell í fyrstu umferð í riðlakeppni Afríkukeppninnar á Fílabeinsströndinni í kvöld, en þjóðin tapaði fyrir Grænhöfðaeyjum, 2-1, með sigurmarki í uppbótartíma.

Tólf sæti skilja liðin að á heimslista FIFA en Gana er í 61. sæti á meðan Grænhöfðaeyjar eru í 73. sæti.

Jamiro Monteiro kom Grænhöfðaeyjum óvænt í forystu á 17. mínútu er hann skoraði af stuttu færi eftir að hann hirti frákast í teignum.

Liðið pressaði Gana ofarlega á vellinum og skapaði sér hættulegri færi í fyrri hálfleiknum. Gana kom vissulega boltanum í netið undir lok hálfleiksins en markið var dæmt af þar sem leikmaður Gana var í rangstöðu og stóð fyrir markverði Grænhöfðaeyja í aðdraganda marksins.

Alexander Djiku kom Gana aftur inn í leikinn með góðu jöfnunarmarki eftir hornspyrnu. Djiku var einnig öflugur í vörninni en hann bjargaði á línu frá Bebe, fyrrum leikmanni Manchester United og þá varði Richard Ofori, markvörður Gana, tvisvar, en hann gat ekki komið í veg fyrir sigurmarkið.

Misskilningur og klaufaskapur í vörn Gana leyfði Rodrigues að pota boltanum örugglega inn úr miðjum teignum og tryggja Grænhöfðaeyjum fyrsta sigurinn í mótinu.

Grænhöfðeyjar eru því í efsta sæti B-riðils eftir fyrstu umferðina á meðan Egyptaland og Mósambík deila öðru sætinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.