Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 14. febrúar 2020 17:40
Ívan Guðjón Baldursson
Fannar Örn genginn til liðs við Magna (Staðfest)
Mynd: Valgeir Kárason
Varnarmaðurinn Fannar Örn Kolbeinsson er genginn í raðir Magna eftir rúman áratug hjá Tindastóli.

Fannar Örn er fæddur 1992 og á 183 keppnisleiki að baki fyrir Tindastól. Fyrsta leikinn spilaði hann árið 2007 í VISA bikarnum.

Tindastóll endaði í neðsta sæti 2. deildar í fyrra. Magni spilar í 1. deild og verður það skemmtileg áskorun fyrir Fannar, sem hefur ekki leikið í 1. deild síðan sumarið 2014.

Magni rétt forðaði sér frá falli síðasta sumar og verður áhugavert að fylgjast með Grenvíkingum í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner